Skip Repetitive Navigational Links

Please login

 

The History

The history behind The Society Of Icelandic Composers

Page:

Upphafið

Miðvikudaginn 25. júlí árið 1945, komu saman á aðalskrifstofu Ríkisútvarpsins, til þess að ræða um stofnun Tónskáldafélags Íslands eftirtaldir menn: Jón Leifs, Páll Ísólfsson, Sigurður Þórðarson, Karl O. Runólfsson og Helgi Pálsson. Frumkvæðið að fundi þessumátti Jón Leifs. Hafði hann reynt að koma boðum um fund þennan til allra þeirra read more »

Tónlistarsýningin 1947

Tónskáld á Íslandi eiga nú við álíka kjör að búa og rithöfundar hér á 13. öld, sem skráðu verk sín á skinn án hagnaðar. Þó er sá munur á, að handrit skáldanna fóru úr einum höndum í aðrar, vóru afrituð og lesin upphátt og í hljóði öllum landslýð til fyllilegra read more »

Tónlistarnefnd Tónskáldafélagsins

Eitt af verkefnum félagsins var að stofna tónlistarnefnd til að gera tillögur um flutning tónlistar í útvarpinu. Skyldi félagið hafa fulltrúa í henni og fór þess á leit að útvarpslögum yrði breytt til þess að því gæti orðið. Hinn 15 apríl 1951 ritaði félagið eftirfarandi bréf til formanns útvarpsráðs, Ólafs read more »

Norræna Tónlistarhátíðin 1954

Íslendingum öðlaðist réttur til að halda hinar Norrænu tónlistarhátíðir er Ísland varð aðili að Bernarsambandinu haustið 1943 en hátíðir þessar hafa verið viðburður í hverju norðurlandanna fyrir sig annað hvert ár frá árinu 1947 (þó fjórða hvert ár frá 1888 - 1938, en féll þá niður í 9 ár vegna read more »

Tónlistarhátíð Tónskáldafélagsins 1957

Haustið 1955 stóð til af hálfu Tónskáldafélagsins að minnast 10 ára afmæli þess með því að halda tónlistarhátíð þar sem flytja skyldi eingöngu íslenska tónlist. En á síðustu stundu var Íslensku tónlistarhátíðinni frestað vegna skorts á sinfóníuhljómveit. Útvarpsstjóri, Vihljálmur Þ. Gíslason hafði lagt niður sinfóníuhljómveitina á vegum útvarpsins og því read more »

Alþjóðaráð tónskálda

Eitt þeirra félaga sem Jón Leifs kom á laggirnar var Alþjóðaráð Tónskálda (Conseil International des Compositeurs – CIC). Að frumkvæði Tónskáldafélags Íslands (Jóns Leifs) var boðað til fundar í Reykjavík dagana 12.-17. júní 1954 um stofnun slíks ráðs er gæta skyldi hagsmuna tónskáda á alþjóðlegu sviði. Í ráðinu áttu sæti read more »

Sjöundi áratugurinn

Þó svo eitt aðalamálið á vettvangi Tónskáldafélagsins á þessum áratug hafi verið stofnun tónverkamiðstöðvar, báru ýmis önnum mál á góma. Óbeisluð framganga formannsins upp úr 1960 olli nokkrum blaðaskrifum og fram komu ýmsar dylgjur frá hans hendi sem leiðréttingar þurfti við. Urðu niðurstöður þær að formanni, Jóni Leifs, var bannað read more »

Íslensk Tónverkamiðstöð-Aðdragandi að stofnun

Eitt af baráttumálum íslenskra tónskálda var stofnun svokallaðrar MIC stöðvar (Music Information Center) – Tónverkamiðstöðvar. Umræðan um stofnun hennar fór fyrir alvöru af stað upp úr 1960 og leiddi að lokum til stofnunar Íslenskrar Tónverkaviðstöðvar árið 1968 – en þó ekki á vegum Tónskáldafélagsins.
Upp komu hugmyndir hjá Tónskáldafélaginu
read more »

Stofnun Íslenskrar tónverkamiðstöðvar

Á næstu þremur vikum átti sér stað ákveðið uppgjör kynslóðanna í Tónskáldafélagi Íslands. Það óskoraða vald sem Jón Leifs hafði haft sem forystumaður og frumkvöðull í hagsmunamálum íslenskra tónskálda í nánast 20 ár samfleytt færðist í hendur annarra manna. Hver sem var hin eiginlega ástæða, verður að álykta að allur read more »

Erlend samskipti

Ljóst er, að framganga ýmissa mála á vegum Tónskáldafélags Íslands gekk hægt fyrir sig. Má þar til nefna ýmist samstarf við systurfélögin á Norðurlöndum, en mikil fjarlægð og mikill ferðakostnaður kom í veg fyrir reglulega þátttöku í þessu samstarfi. Einnig var sú spurning frammi hvort Ísland hefði þann ávinning af read more »

Page: